Óvissa um landsmót hestamanna

Svakalegar þessar fréttir um að landsmóti hestamanna verði jafnvel aflýst, vegna kvefs og nefrennslis hjá hrossunum.

Heyrst hefur að ÁTVR muni senda frá sér afkomuviðvörun…

Kínversk speki?

“Enginn er svo lítill að hann geti ekki teygt úr sér.”

Þetta poppaði upp í hausinn á mér í gær. Veit ekki hvort ég las þetta einhvers staðar eða hvort þetta er einhver aukamylsna úr eigin kvörnum, sem voru á fullu í gær að mylja efni í síðustu ritgerðina.

Þetta hljómar eins og “kínversk speki” eða eitthvað í þá veruna. Leitarvélar Alnetsins virðast samt ekki kannast við þetta máltæki. Spurning hvort annar hvor lesandi síðunnar gæti varpað ljósi á málið?

Ljóð

Ást er…

Ég geri mér ferð
úr sjónvarpssófanum
fram í eldhús
til þess að

klípa hana í rassinn.

Svo (lengi) lærir sem lifir

Ég sé að síðustu færslur fjalla óþarflega mikið um snjó. Mér er ekki um snjó gefið og kannski betra að beina skrifunum að öðru.

Til dæmis er skemmtilegt frá því að segja að ég er nýbúinn að læra að afhýða banana að hætti apa og finnst sú aðferð miklu sniðugri en sú gamla. Ég er samt ekki viss um hvort það er þroskamerki.

Konudagurinn að baki

Ég hef stundum gaukað einhverju lítilræði að sambýliskonunni á konudaginn svokallaða. Ekki oft þó. Nú hefur hún hins vegar fengið glaðning tvö ár í röð. Í fyrra seldi talsmaður íþróttafélags mér þá hugmynd að léti ég hann fá peninga þá myndi einhver íþróttagæi banka upp á að morgni konudags og færa konunni minni blómvönd. Sumum gæti fundist að hinn raunverulegi gefandi væri óþarflega smátt númer í svona jöfnu en frúin virtist hins vegar í sjöunda himni þegar hún fékk blómin. Skil það nú ekki alveg, sjálfum fannst mér vöndurinn frekar rytjulegur.

Þetta árið var ég hins vegar grand á því og fjárfesti í sterklegri og gljáfægðri snjóskóflu úr vönduðu áli handa frúnni. Alveg nýjasta módel, keypt í dýrri sérverslun. Konur fíla svoleiðis. Hún varð auðvitað alveg himinlifandi og fór strax alsæl út að moka, þó að hún hafi reyndar verið búin að hjakka með gömlu beyglunni og taka það mesta. Nú héldu henni hins vegar engin bönd og það var unun að fylgast með tilþrifunum út um gluggann. Og eins og þeir vita sem fylgjast með þá er meira en nægur snjór á Akureyri, handa öllum þeim sem eru gefnir fyrir mokstur.

Ekki spillti fyrir að hún var svo spræk eftir moksturinn að hún skellti í vöfflur með kaffinu og hafði líka keypt þessa fínu tertu. Þannig að þetta var alveg ljómandi konudagur.

Auglýsing

Mig langar að biðja þennan bænheita einstakling sem óskaði eftir hvítum jólum á Akureyri og nágrenni að hafa samband við mig. Ég þarf að fá hann í ofurlítið verkefni.

Þarf að hafa með sér skóflu.

Úthaldsgóði kylfingurinn

Kúlur fægir. Kylfu grípur.
Kappinn er til reiðu búinn.
Hola átján. Hveljur sýpur.
Hetjan er að verða lúin.

Töff að reykja?

Ég hugsa að Matthías og Styrmir hefðu snúið sér við í gröfinni, væru þeir dauðir, vegna vægast sagt sérkennilegrar umfjöllunar í Mogganum í gær. Rætt var við unga stúlku sem á forláta vatnspípu, fær sér á stundum smók úr henni og dregur hana fram í samkvæmum til að leyfa viðstöddum að prófa. Myndir fylgir með af stúlkunni og vinkonu hennar með græjuna. Mynd á baksíðu líka, með tilvitnun í greinina.

Öll umfjöllunin var sett fram með þeim hætti að það væri töff, flott og kúl að reykja vatnspípu… tja, rétt eins og fjallað væri um nýstárlega og flotta fatahönnun eða eitthvað slíkt.

Ég trúi þessu varla ennþá!

Er ekki allt í lagi í Hádegismóunum? Hugsanlega hefði maður búist við umfjöllun af þessu tagi í einhverju tímariti sem á að höfða til ungs fólks. En MOGGINN?? Íhaldssamasti fjölmiðill landsins til margra áratuga! Mogginn að breiða út þann boðskap að reykingar séu töff og kúl!!

Í vatnspípum þessum er reykt ávaxtablandað tóbak og tekið var fram að það væri “ekki eins sterkt” og annað tóbak….

Bíddu við…

Ef umfjöllunin hefði verið um áfengan gosdrykk með ávaxtabragði - svaka töff drykk, frískandi og flottan - hefði það verið í lagi? Vissulega er svona mjöður “ekki eins sterkur og vodka” en samt sem áður er þetta fokkings áfengi!!

Ég viðurkenni að ég er alveg hreint standandi bit á þessu. Áróðurinn sem rekinn hefur verið gegn reykingum síðustu áratugi hefur verið að síast í gegn smám saman - og svo kemur þetta.

Ekki er ég búinn að lesa Moggann í dag en ef þar verður ekki að finna einhvers konar umræðu um þetta mál þá er ég illa svikinn.

Litríkur þjálfari

Ég veit ekki með ykkur en mér finnst Guðjón Þórðarson vera að ná mjög athyglisverðum árangri með Skagaliðið.

1. maí

Internationalinn :
alþjóðasöngur verkalýðsins


Fram, þjáðir menn í þúsund löndum
sem þekkið skortsins glímutök !
Nú bárur frelsis brotna á ströndum
boða kúgun ragnarök.
Fúnar stoðir burtu vér brjótum
Bræður! Fylkjum liði í dag !
Vér bárum fjötra, en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.


Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn i hönd !
Því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd.


Á hæðum vér ei finnum frelsi,
hjá furstum eða goðaþjóð;
nei, sameinaðir sundrum helsi
og sigrum, því ei skortir móð.
Alls hins stolna aftur vér krefjumst,
ánauð þolir hugur vor trautt,
og sjálfir brátt vér handa hefjumst
og hömrum meðan járn er rautt.


Vér erum lagabrögðum beittir
og byrðar vorar þyngdar meir,
en auðmenn ganga gulli skreyttir
og góssi saman raka þeir.
Nú er tími til dirfsku og dáða.
Vér dugum, - þiggjum ekki af náð,
Látum bræður því réttlætið ráða,
svo ríkislög vor verði skráð.


Till sigurs, eining öreiganna
með alþýðunnar stolta nafn
Þín jörð er óðal allra manna,
en ekki fyrir gamm né hrafn !
Þeirra kyn skóp þér örbrigð og ótta
en er þeir skuggar hverfa úr sýn
einn vordag snemma á feigðarflötta
mun fegurð lífsins verða þín.


Sókn til frelsis er falin
vorri fylkingu í dag
unz Internationalinn
er allra bræðrarlag.

Höf.: Eugén Pottier
þýð.: Sveinbjörn Sigurjónsson

Eldri færslur »