Flokkað undir Almennt þann 25. desember 2009 Engar athugasemdir »
Mig langar að biðja þennan bænheita einstakling sem óskaði eftir hvítum jólum á Akureyri og nágrenni að hafa samband við mig. Ég þarf að fá hann í ofurlítið verkefni.
Þarf að hafa með sér skóflu.
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 4. september 2008 2 athugasemdir »
Ég hugsa að Matthías og Styrmir hefðu snúið sér við í gröfinni, væru þeir dauðir, vegna vægast sagt sérkennilegrar umfjöllunar í Mogganum í gær. Rætt var við unga stúlku sem á forláta vatnspípu, fær sér á stundum smók úr henni og dregur hana fram í samkvæmum til að leyfa viðstöddum að prófa. Myndir fylgir með […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt, Pólitík þann 30. apríl 2008 1 athugasemd »
Internationalinn :
alþjóðasöngur verkalýðsins
Fram, þjáðir menn í þúsund löndum
sem þekkið skortsins glímutök !
Nú bárur frelsis brotna á ströndum
boða kúgun ragnarök.
Fúnar stoðir burtu vér brjótum
Bræður! Fylkjum liði í dag !
Vér bárum fjötra, en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.
Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn i hönd !
Því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd.
Á hæðum vér ei finnum […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 31. mars 2008 2 athugasemdir »
Ég þarf að fara að hætta að snúsa svona oft á morgnana.
Annars hlýtur að vera til betra íslenskt orð yfir þessa athöfn en snús.
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt, Íþróttir þann 8. janúar 2008 2 athugasemdir »
Ég er þreyttur eftir auðveldan dag í ræktinni.
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt, Tölvur og tækni þann 3. október 2007 3 athugasemdir »
Sá merkilegt forrit á Netinu þar sem maður getur fundið út líklegar lottótölur, með því að slá inn vinningstölur síðustu mánaða. Forritið reiknar svo eftir kúnstarinnar reglum hvaða tölur líklegast er að komi upp næst.
Ég prófaði þetta í morgun með Víkingalottótölur og forritið skyrpti út úr sér tölum sem það vildi halda fram að myndu […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 2. október 2007 Engar athugasemdir »
… heimurinn fór ekki á hvolf í gær. Svona almennt var 1. október hjá öllum sem ég þekki en ekki 31. september.
Þannig að þetta slapp fyrir horn - í bili. En það er samt best að halda vöku sinni.
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 24. september 2007 2 athugasemdir »
Tímatalsfræði eru flókin vísindi og ekki á allra færi að reikna út gang tímans svo treystandi sé á. Ýmis kerfi hafa verið fundin upp síðustu árþúsundin til að henda reiður á hvernig tímanum líður og byggjast þau mörg hver á snúningi jarðar um möndul sinn, auk ferðalags jarðarinna kringum sólina. En vegna þess að jörðin […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 31. ágúst 2007 3 athugasemdir »
Í morgun þegar ég skálmaði í vinnuna mætti ég manni á reiðhjóli sem kastaði á mig kveðju. “Sæll Doddi,” sagði hann.
Ekki fannst mér hann líkur neinum sem ég þekki - en er jafnframt viss um að því er einmitt öfugt farið með hann.
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 2. maí 2007 5 athugasemdir »
Engu er um það logið að veðrið hafi leikið við okkur undanfarna daga. Þetta hafa verið eins og bestu sumardagar og vel fallnir til útiveru.
Við fjölskyldan tókum okkur til um helgina og fórum í litla fjallgöngu. Gengum upp að hinum fornfræga skátaskála Fálkafelli, sem er uppi á Súlumýrum, skammt ofan Akureyrar. Þetta er hvorki mikil […]
Lesa alla færsluna »