Flokkað undir Matur og vín þann 25. maí 2010 Engar athugasemdir »
Svakalegar þessar fréttir um að landsmóti hestamanna verði jafnvel aflýst, vegna kvefs og nefrennslis hjá hrossunum.
Heyrst hefur að ÁTVR muni senda frá sér afkomuviðvörun…
Lesa alla færsluna »
Ég sé að síðustu færslur fjalla óþarflega mikið um snjó. Mér er ekki um snjó gefið og kannski betra að beina skrifunum að öðru.
Til dæmis er skemmtilegt frá því að segja að ég er nýbúinn að læra að afhýða banana að hætti apa og finnst sú aðferð miklu sniðugri en sú gamla. Ég er samt […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Matur og vín þann 20. desember 2007 2 athugasemdir »
Flokkað undir Matur og vín þann 22. september 2007 3 athugasemdir »
Ég og sambýliskonan tókum hús á konu einni ónafngreindri á Brekkunni nú síðdegis og fengum góðar veitingar. Ekki síst var hressandi að bergja á notalegum pólskum líkjör sem húsfreyja lumaði á. Þaðan er nú þessi hnyttna fyrirsögn komin!
Ekki má gleyma því að ég skulda henni viskíflösku. Þarf að gera þá skuld upp áður en næsta […]
Lesa alla færsluna »
Eins og ég er nú mikið gefinn fyrir alls kyns nammi og gotterí, þá hef ég aldrei verið hrifinn af “hlaupi”. Og nú held ég að skýringin sé fundin. Neðangreind klausa er svar Vísindavefsins við spurningunni: “Úr hverju er nammihlaup?”:
“Sælgætishlaup er aðallega gert úr gelatíni sem unnið er úr dýraafurðum, ásamt sykri eða öðrum sætuefnum, […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Matur og vín þann 6. mars 2007 2 athugasemdir »
Mig langar að koma því á framfæri að Bakaríið við brúna er farið að laga og selja eigin brauðsalöt. Túnfisksalatið sem þar fæst nú keypt er algert lostæti. Ekki einhver brún leðja, eins og tilbúin túnfisksalöt eru oftast, heldur hnausþykkt og ilmandi af túnfisk, eggjum og rauðlauk. Jafnast á við bestu heimagerðu salötin!
Enn ein skrautfjöðrin […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Matur og vín þann 21. febrúar 2007 3 athugasemdir »
Vegna þess að ég hef á stundum viðhaft óvirðuleg orð um Bautann og kostinn þar þykir mér rétt að gera heyrinkunnugt að í dag fékk ég þar mjög ljúffengan mat. Þetta var ofnbakað grænmetislasagna. Mikið af góðu og fersku grænmeti í þessum rétti og hann smakkaðist alveg hreint ljómandi vel.
Á örugglega eftir að fá mér […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Matur og vín þann 5. október 2006 3 athugasemdir »
Ég má til með að vekja athygli á opnum kynningarfundi Vínklúbbs Akureyrar í kvöld. Við hjónaleysin höfum verið býsna virk í þessum klúbbi undanfarin ár og höfum haft bæði gagn og gaman af. Viðburðirnir eru mjög skemmtilegir, ekki síður en fræðandi, og höfða til “venjulegs” fólks. Þetta er sem sé ekki félagsskapur sérfræðinga og besserwissera, […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Matur og vín þann 1. október 2006 2 athugasemdir »
Já, ég kalla það nauðgun þegar manni er grandalausum selt eitthvert gourmet sem reynist síðan vera samanpressað uppsóp.
En nú kemur saga. Til útskýringar á fyrirsögninni.
Kjötframleiðslufyrirtæki bjóða flest hver upp á einhvers konar “helgarsteikur”. Sem er þá tilbúið, kryddað kjötstykki í álformi sem aðeins þarf að stinga í ofninn í þrjú korter eða svo og þá […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Matur og vín þann 22. júní 2006 2 athugasemdir »
Ég get valið um tvo staði í hádeginu til að snæða niðurgreiddan mat, Bautann og Strikið. Á föstudögum er grillað á Strikinu og boðið upp á vandað og girnilegt grillket, bakaðar kartöflur, maísstöngla og ég veit ekki hvað. Þar að auki er hægt að velja um ýmsa rétti af matseðli.
Á Bautanum á morgun eru kjötbollur […]
Lesa alla færsluna »