Flokkað undir Almennt, Pólitík þann 30. apríl 2008 1 athugasemd »
Internationalinn :
alþjóðasöngur verkalýðsins
Fram, þjáðir menn í þúsund löndum
sem þekkið skortsins glímutök !
Nú bárur frelsis brotna á ströndum
boða kúgun ragnarök.
Fúnar stoðir burtu vér brjótum
Bræður! Fylkjum liði í dag !
Vér bárum fjötra, en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.
Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn i hönd !
Því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd.
Á hæðum vér ei finnum […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Pólitík þann 1. nóvember 2006 Engar athugasemdir »
Það er dálítið kúnstugt að fylgjast með sérkennilegum blammeringum sjálfstæðismanna í Reykjavík um það að einhverjir frambjóðendur hafi haft aðgang að “nýrri” félagaskrá en aðrir og þar með notið forskots í úthringingum.
Ég skil þetta ekki. Það hlýtur að vera til einhver félagaskrá. Svoleiðis er væntanlega til í flestum félögum. Ekki síst þar sem félagsmenn skipta […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Pólitík þann 19. september 2006 1 athugasemd »
Jæja, þá eru ekki nema nokkrir dagar þangað til síðustu starfsmenn Bandaríkjahers á Miðnesheiði hverfa á braut. Þoturnar farnar, þyrlurnar farnar.
Sumir hafa kallað herstöðina, og það sem henni fylgir, varnarlið. Að verið sé að verja landið fyrir hvers kyns ógn, og þá aðallega innrásum óvinveittra þjóða. Margir hafa alltaf verið á móti þessari hersetu og […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Pólitík þann 24. maí 2006 1 athugasemd »
Fara menn út í pólitík hugsjónanna vegna? Vilja menn taka þátt í og hafa áhrif á mótun samfélagsins og vinna að bættum hag lands og lýðs?
Örugglega mjög margir. Sem er gott. Svo eru aðrir sem eru í þessu til að sækjast eftir völdum. Eða skara eld að eigin köku. Sem er ekki eins gott.
Framsóknarmaður á […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Pólitík þann 23. maí 2006 Engar athugasemdir »
Kosningabaráttan á Akureyri hefur verið harla daufleg en þó eru stöku atriði sem skapa titring. Eitt þeirra er hugsanlegt þingframboð núverandi bæjarstjóra. Í Kastljósinu í vikunni var Kristján þráspurður um þetta atriði og í dag sá Flokkurinn ástæðu til að senda út fréttatilkynningu til að skýra málið enn frekar… “Borist hefur fréttatilkynning frá Sjálfstæðisflokknum á […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt, Pólitík þann 1. mars 2006 2 athugasemdir »
Tíðindi dagsins eru trúlega fagnaðarlæti Húsvíkinga yfir loðnum yfirlýsingum sem bárust frá New York um að hugsanlega yrði skoðað að pæla í að athuga með álver í nágrenni Húsavíkur… einhvern tímann fljótlega.
Gott og vel. Sjáum til hvað gerist. Ef af verður mun ekki farið út í neinar framkvæmdir fyrr en árið 2010 í fyrsta lagi. […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Pólitík þann 15. febrúar 2006 Engar athugasemdir »
Það er ekki úr vegi að blanda sér aðeins í þær umræður sem hafa skapast að loknu prófkjöri sjálfstæðismanna á Akureyri. Nokkrir athyglisverðir punktar eru í niðurstöðunum og sumir áhugaverðari en aðrir.
Lesa alla færsluna »