Færslur í flokknum 'Íþróttir'

Úthaldsgóði kylfingurinn

Kúlur fægir. Kylfu grípur.
Kappinn er til reiðu búinn.
Hola átján. Hveljur sýpur.
Hetjan er að verða lúin.

Lesa alla færsluna »

Litríkur þjálfari

Ég veit ekki með ykkur en mér finnst Guðjón Þórðarson vera að ná mjög athyglisverðum árangri með Skagaliðið.

Lesa alla færsluna »

Úff

Ég er þreyttur eftir auðveldan dag í ræktinni.

Lesa alla færsluna »

Langþráður sigur

Nú er kominn tími á smá íþróttaspjall!
QPR vann nefnilega leik í gærkvöld og það hefur ekki gerst ansi lengi. Mínir menn hafa sogast niður í fallbaráttuna síðustu mánuði og þeir sem til þekkja vita að fallbaráttan í ensku deildunum er ofboðslega harðvítug. Enda að miklu að keppa, því það getur riðið félögum að fullu fjárhagslega […]

Lesa alla færsluna »

Almenn tíðindi

Jæja, hvernig væri nú að skrifa einu sinni eitthvað smávegis úr daglega lífinu? Eiginlega ætlaði ég fyrst að bölsótast yfir hnignun RÚV, því í morgun er ég var að ganga í vinnuna með morgunútvarp Rásar 2 í eyrunum ákvað umsjónarkonan að draga niður í Bob Dylan vegna þess að hana langaði svo að heyra nýja […]

Lesa alla færsluna »

Grátlegt tap

Hrikalegt að tapa þessum leik. Þrátt fyrir að vörn og markverðir næðu engan veginn að standa dönsku skyttunum snúning, þá náðum við að hanga í Dönunum. Lokakafli venjulegs leiktíma var hrikalega spennandi, við söxuðum á forskotið jafnt og þétt, og ekki hefði ég viljað standa í sporum Snorra Steins á vítapunktinum í lokin. En hann […]

Lesa alla færsluna »

05:40

Í gærkvöld stillti ég vekjarann á 05:40. Sem er hánótt, eins og allir vita. Ég var vaknaður á undan klukkunni, merkilegt nokk. Sennilega verið svona svakalega spenntur. Dró á mig spjarirnar, blés í kaun og hélt út í nístandi frostið. Íshellan á bílrúðunum var nánast óbrjótandi og ég þurfti að beita sköfunni af mikilli hörku […]

Lesa alla færsluna »

Kominn í mark…

… og er á lífi. Meira að segja í ágætis standi. Þetta gekk betur en nokkur þorði að vona. Viðurkenni þó að þegar 5 km voru að baki og framundan var “spottinn” frá BSO inn að Skautasvelli og þaðan aftur út að Akureyrarvelli, þá fannst mér vera laaaaaaangt eftir. En þetta hafðist. Skref fyrir skref, […]

Lesa alla færsluna »

Akureyrarhlaupið

Á morgun fer fram hið árlega Akureyrarhlaup. Léttstígir hlauparar munu þá svífa þrjá, tíu eða tuttuguogeinnkommaeinn km eftir götum bæjarins.
Fyrir tveimur árum tók ég þátt og fór 3 km. Það gekk vægast sagt illa og sennilega náði ég ekki að skokka nema helming leiðarinnar í mesta lagi. Enda hafði ég ekki hlaupið við fót ansi […]

Lesa alla færsluna »

Þórsarar Íslandsmeistarar

Eins og alkunna er þá hafa Þórsararnir mínir ekki verið að standa sig neitt sérlega vel í fótboltanum í sumar. Þess vegna var frábært að fá þær ánægjulegu fréttir í gær að 3. flokkur félagsins hafi hvorki meira né minna en orðið Íslandsmeistari! Þessir strákar unnu sinn riðil í sumar með miklum yfirburðum og unnu […]

Lesa alla færsluna »

Næsta »