Færslur í flokknum 'Tölvur og tækni'

Ég sé að síðustu færslur fjalla óþarflega mikið um snjó. Mér er ekki um snjó gefið og kannski betra að beina skrifunum að öðru.
Til dæmis er skemmtilegt frá því að segja að ég er nýbúinn að læra að afhýða banana að hætti apa og finnst sú aðferð miklu sniðugri en sú gamla. Ég er samt […]

Lesa alla færsluna »

Sá merkilegt forrit á Netinu þar sem maður getur fundið út líklegar lottótölur, með því að slá inn vinningstölur síðustu mánaða. Forritið reiknar svo eftir kúnstarinnar reglum hvaða tölur líklegast er að komi upp næst.
Ég prófaði þetta í morgun með Víkingalottótölur og forritið skyrpti út úr sér tölum sem það vildi halda fram að myndu […]

Lesa alla færsluna »

Eins og lesendur taka eflaust eftir þá hefur ásýnd vefsins tekið töluverðum breytingum síðan síðast. Enda lofaði ég því um daginn að fara að gera eitthvað í þessu.
Það sem birtist hérna á yfirborðinu segir þó ekki alla söguna. Ég tók mig til eftir kvöldmat og fór í löngu tímabærar uppfærslur á vefþjóninum. Vélin sem […]

Lesa alla færsluna »

Uppfærsla nálgast

Eins og ég lofaði einhvern tímann nýlega þá ætlaði ég að taka útlitið á vefnum í gegn. Nokkrum dögum síðar kom hins vegar út stór uppfærsla á WordPress vefkerfinu og við þær aðstæður er rétt að doka með að hræra í útlitseiningunum. Byrja á því að uppfæra vefkerfið sjálft. Margar skemmtilegar nýjungar í þessari útgáfu.
Nú […]

Lesa alla færsluna »

Rusl og ami

Undanfarið hefur “kommentaspam” hrjáð þennan litla vef minn í auknum mæli og því hef ég þurft að grípa til aðgerða. Kommentaspam er svipað og ruslpóstur…. það rignir inn kommentum við færslurnar um t.d. hin og þessi lyf, auk alls kyns óprenthæfs sora. Meðan þetta var bara eitt og eitt skeyti, þá var lítið mál að […]

Lesa alla færsluna »