Færslur í apríl 2006

Top floor

Á efstu hæðinni í Skipagötu 14 er veitingastaðurinn Strikið, þar sem áður var Fiðlarinn. Við fórum þangað nokkrir úr vinnunni í hádeginu og svo var um fleiri, því staðurinn var kjaftfullur.
Til að gera langa sögu stutta þá get ég óhikað mælt með Top floor borgaranum. Tvöfaldur risaborgari, 280 g skrímsli, fyrir utan beikonið, laukinn, tómatana […]

Lesa alla færsluna »

Góður brandari…

Sumir brandarar eru dálítið “sérhæfðari” en aðrir. Þessi hérna finnst mér t.d. alltaf jafn ógeðslega fyndinn:
“Two strings walk into a bar. The first string says to the bartender: ‘Bartender, I’ll have a beer. u.5n$x5t?*&4ru!2[sACC~ErJ‘. The second string says: ‘Pardon my friend, he isn’t NULL terminated‘.”
Mig grunar að ekki séu margir utan þröngs hóps tölvunörda sem […]

Lesa alla færsluna »

Kínverskir tölvuþrjótar?

Hvað á maður að halda þegar maður er í mesta sakleysi að millifæra í heimabankanum sínum, smellir á “Áfram” og fær þetta í andlitið?

Lesa alla færsluna »

Meistarinn

Spurningaþátturinn Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudagskvöldum. Í gærkvöld mætti “okkar maður” Erlingur Sigurðarson Merði Árnasyni, þingmanni og íslenskufræðingi. Mörður hefur nú gjarnan verið talinn víðlesinn og vel að sér en sá aldrei til sólar gegn Erlingi. Erlingur beinlínis valtaði yfir hann, bæði aftur á bak og áfram, og reykspólaði svo á honum […]

Lesa alla færsluna »

Kaffi er gott

Eftir að á heimilið kom forláta maskína sem malar kaffibaunir og hellir upp á í bollavís hefur kaffitengd tilraunastarfsemi aukist hröðum skrefum. Þegar frystirinn er opnaður lítur hurðin svona út:

Mér telst til að þarna sé hægt að velja um ellefu tegundir kaffis. Sem er auðvitað nett klikkun
Ekki ætla ég að telja þær allar […]

Lesa alla færsluna »

Villuráfandi sauðir

Tveir menn á vélsleðum ákveða að skreppa eitt síðdegi upp á Langjökul að rúnta. Óvanir jöklaferðum. Ekki með fjarskiptatæki af neinu tagi. Ekki með staðsetningar- eða leiðsögutæki. Skila sér ekki heim.
Á þriðja hundrað björgunarsveitarmenn frá Húnavatnssýslum, Skagafirði, Borgarfirði, Árnessýslu, Rangárvallasýslu, Eyjafirði, Snæfellsnesi og af höfuðborgarsvæðinu leita. Sextíu vélsleðar og tíu snjóbílar. Tvær þyrlur og ein […]

Lesa alla færsluna »

Mogganum í dag fylgdi álímdur miði á forsíðu… og kallaður “gjafakort”. Með þetta “gjafakort” að vopni er hægt að fara inn á vef Milljónatombólunnar og athuga hvort maður sé svo heppinn að eiga “inneign”.
Eins og segir á miðanum: “Farðu varlega með gjafakortið, þú gætir verið með í höndunum vöruúttekt fyrir allt að milljón krónur.”
Hljómar vel, […]

Lesa alla færsluna »

Meira rokk :-)

Egó tónleikarnir um daginn voru fjári hressandi og þegar ég rakst á það fyrir einskæra tilviljun að inni á tölvunni minni er öryggisafrit af tónlistinni úr Rokki í Reykjavík þá hef ég haldið mig á þessum hressandi slóðum. Hljómsveitir á borð við Fræbbblana, Vonbrigði, Purrkinn,  Sjálfsfróun, Tappa Tíkarrass, Þey, Q4U og ýmsar fleiri…… margt af […]

Lesa alla færsluna »

Að kaupa á ebay

Eins og þeir vita sem til þekkja þá er uppboðsvefurinn ebay ótrúlegur frumskógur af alls kyns hugsanlegum varningi og oft óhugsanlegum líka. Sjálfur tek ég stundum tarnir í að skoða mig um og ævinlega rekst maður á eitthvað sem annaðhvort er hægt að hrista hausinn yfir eða láta sig langa í. Nokkrum sinnum hef ég […]

Lesa alla færsluna »

Egó í Sjallanum - 5 stjörnur

Gamli maðurinn brá sér í Sjallann á laugardagskvöldið til að hlýða á Bubba og félaga í Egó. Þrátt fyrir annasaman dag var eiginlega ekki hægt að sleppa þessu, Egó var ein af mínum uppáhaldshljómsveitum þegar ég var pínulítið yngri og ég hlusta enn reglulega á plöturnar. Fyrst fór ég á tónleika með Egó í Möðruvallakjallara […]

Lesa alla færsluna »

Næsta »