Færslur í maí 2006

Framsóknarmennska

Fara menn út í pólitík hugsjónanna vegna? Vilja menn taka þátt í og hafa áhrif á mótun samfélagsins og vinna að bættum hag lands og lýðs?
Örugglega mjög margir. Sem er gott. Svo eru aðrir sem eru í þessu til að sækjast eftir völdum. Eða skara eld að eigin köku. Sem er ekki eins gott.
Framsóknarmaður á […]

Lesa alla færsluna »

Titringur

Kosningabaráttan á Akureyri hefur verið harla daufleg en þó eru stöku atriði sem skapa titring. Eitt þeirra er hugsanlegt þingframboð núverandi bæjarstjóra. Í Kastljósinu í vikunni var Kristján þráspurður um þetta atriði og í dag sá Flokkurinn ástæðu til að senda út fréttatilkynningu til að skýra málið enn frekar… “Borist hefur fréttatilkynning frá Sjálfstæðisflokknum á […]

Lesa alla færsluna »

Kölkun

Ég er ekki bara farinn að gleyma…. ég er líka farinn að kalka. Fyrir sex dögum ritaði ég færslu um veisluhöld og fullyrti þar meðal annars að þann dag hafi Andri Yrkill fagnað tólf vetrum.
Svo líður og bíður og í gærdag rekst pilturinn á þessa missögn og kemur kurteislegri leiðréttingu á framfæri. Hann sé raunar […]

Lesa alla færsluna »

Leeds - Watford

Á sunnudaginn kl. 14 leika Leeds og Watford til úrslita um sæti í úrvalsdeildinni ensku. Gríðarmikið er í húfi, enda er úrvalsdeildarsæti ekki síst ávísun á mjög aukið fjárstreymi.
Leikurinn verður sýndur í sjónvarpsholinu heima hjá mér (ekki þó á breiðtjaldi) og allir áhangendur þessara liða sem lesa þessa síðu eru velkomnir í heimsókn. En það […]

Lesa alla færsluna »

Gleymni

Í dag var ég búinn að hugsa töluvert um ákveðið efni sem ég ætlaði að rita færslu um hérna á þessum vettvangi.
Núna er ég bara búinn að steingleyma um hvað ég var að hugsa og hvaða efni þetta var. Þannig að færslan varð aldrei til. Sem er synd, því hún hefði ábyggilega verið mikið tímamótaverk.
Þessi […]

Lesa alla færsluna »

Olíutankar

Ein af bernskuminningunum úr Munkanum er um olíutankinn. Bak við húsið, að vestan, var hálfniðurgrafinn olíutankur. Með einhverju millibili kom olíubílinn; stansaði fyrir framan húsið og svo var þrammað með slönguna upp allar tröppurnar, farið bak við hús og dælt á tankinn. Man að mér þótti olíulyktin góð og oft var bisað við að losa […]

Lesa alla færsluna »

Veisluhöld

Undanfarið hefur verið óvenjumikið um merkisviðburði í fjölskyldunni. Byrjaði með því að frumburðurinn var fermdur með pompi og prakt í lok apríl. Síðan varð Snædís Ylva átta ára nokkrum dögum síðar og Andri Yrkill fagnar tólf vetrum í dag.
Þessum viðburðum fylgja auðvitað mikil og góð veisluhöld og þurft hefur að kalla út aukamannskap til að […]

Lesa alla færsluna »

11. maí

Ellefti maí rétt að klárast. Sem betur fer var dagurinn skárri en ég óttaðist. Kannski einhver hafi klappað mér á öxlina án þess ég vissi? Maður veit aldrei…

Lesa alla færsluna »

Ný færsla

Þetta er glæný færsla. Mér sýnist ég ekki hafa verið nógu duglegur að ausa úr mér undanfarið. Nú stefni ég að því að létta á mér daglega, ef ekki oftar. Trúið mér.
Annars er ég ofboðslega glaður fyrir hönd bankanna að hafa hagnast um liðlega 60 milljarða fyrstu 90 daga ársins. Minna má það ekki vera. […]

Lesa alla færsluna »