Flokkað undir Almennt þann 27. júlí 2006 Engar athugasemdir »
Þá er bara að taka saman draslið. Laga til í húsinu, þrífa og ganga frá. Við Stefán fórum síðan á brautarstöðina og gengum frá kaupum á lestarmiðum fyrir ferðalagið daginn eftir.
Um nónbil var allt að verða þokkalegt. Sumir brugðu sér þá í bæinn, enda hver að verða síðastur, aðrir settust við tölvu/r og enn aðrir […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 26. júlí 2006 Engar athugasemdir »
Nú er farið að síga á seinni hlutann af dvölinni. Næstsíðasti dagurinn… árla föstudags verður lestin tekin á Schipolflugvöll í Amsterdam.
Ansi heitt í dag. Sumir sóluðu sig fyrripart dags en aðrir tóku því rólega með öðrum hætti. Eftir hádegi var ákveðið að skreppa í hjóltúr og skoða þá slóðir í borginni sem við höfðum ekki […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 25. júlí 2006 Engar athugasemdir »
Stefán og fjölskylda skruppu til Amsterdam þennan dag. Fóru snemma og komu seint. Erindið var aðallega að komast í ákveðna plötubúð og ekki var annað að heyra en sú heimsókn hafi verið hin mesta snilld.
Við hin skruppum í bæinn, litum í búðir og hjóluðum um. Síðan var bara slakað á síðdegis, sem er afskaplega notalegt.
Um […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 24. júlí 2006 Engar athugasemdir »
Kvöldið áður var ákveðið að vísitera höfuðborgina Brussel. Þangað er tæplega klukkustundar lestarferð og strax við komuna á brautarstöðina í Brussel bauðst okkur að hoppa upp í vagn sem fer sýnisferðir um borgina. Einmitt það sem var á dagskránni, svo við lögðum bara í hann.
Vagninn þræddi göturnar milli glerhýsanna í miðborginni, sem vafalaust eru stappfullar […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 23. júlí 2006 1 athugasemd »
Ætlar þessi hiti aldrei að hætta að svíða okkur?
Menn voru seinir á fætur eftir erfiða, svefnlitla nótt vegna hita. Rétt hjá okkur er dulítill skemmtigarður og þangað fórum við. Megnuðum ekki löng ferðalög.
Garðurinn var ekki sem verstur og í upphafi sáum við magnaða sýningu sæljóna og höfrunga. Ótrúlegt hvað hægt er að kenna þessum skepnum. […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 22. júlí 2006 Engar athugasemdir »
En samt var heitt í dag. Lögðum ekki í neinar langferðir en vísiteruðum stríðsminjar nálægt Oostende. Ef menn skoða landakort er augljóst að strandlengjan þarna hefur gegnt æðimiklu hlutverki í hernaðarlegu tilliti. Atlantic Wall er heiti á töluverðu flæmi meðram ströndinni og þar eru miklar menjar frá heimsstyrjöldunum tveimur. Þjóðverjar hernámu þetta svæði snemma í […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 21. júlí 2006 Engar athugasemdir »
Þjóðhátíðardagur Belgíu í dag. Flestar verslanir lokaðar og mannlíf með mesta móti. Ef Belgarnir okkar hefðu ekki minnst á þetta í leiðbeiningabæklingi sínum, þá hefðum við ekkert vitað hvað gengi eiginlega á í dag.
En sökum hita var ekki mikill framkvæmahugur í fólki. Stefán og Björg tóku sig þó til og brugðu sér til Gent. Þar […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 20. júlí 2006 2 athugasemdir »
Man ekki hvort ég var búinn að minnast á að það er HEITT hérna! Hitabylgjan sýður og steikir okkur á meginlandinu en veðurfræðingarnir á Íslandi misreiknuðu sig eitthvað örlítið. Bjuggust greinilega við að einhver varmi slæddist þangað líka en það var nú aldeilis þvert á móti. Átta stig og þoka, er það sem maður heyrir […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 19. júlí 2006 4 athugasemdir »
Heitt. Það er eina orðið til að lýsa þessum degi. Fólk vaknaði í svitabaði, ef það gat á annað borð sofið. Við fylgdumst með hitamælinum stíga fram yfir hádegi og hæsta talan sem hann sýndi var 39,9° á Celsíus. Hvorki hægt að vera inni né úti; hitinn var lamandi og þrúgandi og golan sem átti […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 18. júlí 2006 Engar athugasemdir »
Kvöldið áður var ákveðið að gera eitthvað fyrir yngstu kynslóðina. Við vorum búin að lesa okkur til um að í Antwerpen væri prýðilegur dýragarður. Einn sá elsti og virtasti í Evrópu, stofnsettur upp úr 1840. Og ekki verra að hann er staðsettur við hliðina á brautarstöðinni, svo lestarferð til Antwerpen var borðliggjandi. Og ekki versnaði […]
Lesa alla færsluna »