Flokkað undir Almennt þann 27. september 2006 Engar athugasemdir »
Nú er ég að prófa að senda færslu beint úr , sem er einn af betri stöðunum til að setja ljósmyndirnar sínar á netið. Það verður greinilega lítið mál að “blogga” myndirnar sínar þaðan.
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Pólitík þann 19. september 2006 1 athugasemd »
Jæja, þá eru ekki nema nokkrir dagar þangað til síðustu starfsmenn Bandaríkjahers á Miðnesheiði hverfa á braut. Þoturnar farnar, þyrlurnar farnar.
Sumir hafa kallað herstöðina, og það sem henni fylgir, varnarlið. Að verið sé að verja landið fyrir hvers kyns ógn, og þá aðallega innrásum óvinveittra þjóða. Margir hafa alltaf verið á móti þessari hersetu og […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Tölvur og tækni þann 19. september 2006 Engar athugasemdir »
Undanfarið hefur “kommentaspam” hrjáð þennan litla vef minn í auknum mæli og því hef ég þurft að grípa til aðgerða. Kommentaspam er svipað og ruslpóstur…. það rignir inn kommentum við færslurnar um t.d. hin og þessi lyf, auk alls kyns óprenthæfs sora. Meðan þetta var bara eitt og eitt skeyti, þá var lítið mál að […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt, Íþróttir þann 16. september 2006 Engar athugasemdir »
… og er á lífi. Meira að segja í ágætis standi. Þetta gekk betur en nokkur þorði að vona. Viðurkenni þó að þegar 5 km voru að baki og framundan var “spottinn” frá BSO inn að Skautasvelli og þaðan aftur út að Akureyrarvelli, þá fannst mér vera laaaaaaangt eftir. En þetta hafðist. Skref fyrir skref, […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt, Íþróttir þann 15. september 2006 Engar athugasemdir »
Á morgun fer fram hið árlega Akureyrarhlaup. Léttstígir hlauparar munu þá svífa þrjá, tíu eða tuttuguogeinnkommaeinn km eftir götum bæjarins.
Fyrir tveimur árum tók ég þátt og fór 3 km. Það gekk vægast sagt illa og sennilega náði ég ekki að skokka nema helming leiðarinnar í mesta lagi. Enda hafði ég ekki hlaupið við fót ansi […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 13. september 2006 Engar athugasemdir »
Á ákveðnum bloggsíðum hafa menn undanfarið verið að yrkja eftirmæli um látin gæludýr í erg og gríð. Þótt hross teljist seint til gæludýra, a.m.k. frá mínum bæjardyrum séð, get ég ekki á mér setið að “stela” tveimur kviðlingum þar sem ort er um hross.
Blesi forðum bera vann
börn er honum unnu.
Síðan dauðinn sótti hann
saltkjöt er í […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Íþróttir þann 11. september 2006 Engar athugasemdir »
Eins og alkunna er þá hafa Þórsararnir mínir ekki verið að standa sig neitt sérlega vel í fótboltanum í sumar. Þess vegna var frábært að fá þær ánægjulegu fréttir í gær að 3. flokkur félagsins hafi hvorki meira né minna en orðið Íslandsmeistari! Þessir strákar unnu sinn riðil í sumar með miklum yfirburðum og unnu […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Íþróttir þann 9. september 2006 Engar athugasemdir »
Þær voru langar að líða síðustu mínúturnar í Þórsleiknum í dag. Viðbótartíminn var heilar fimm mínútur en mínir menn vörðu forskotið með kjafti og klóm og stóðu uppi sem sigurvegarar þegar flautað var af. Eitt núll urðu úrslitin og vel var fagnað. Úrslit annarra leikja voru reyndar ekki nógu hagstæð og við erum ennþá í […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt, Íþróttir þann 8. september 2006 Engar athugasemdir »
Á morgun er að duga eða drepast fyrir okkur Þórsara. Næstsíðasti leikurinn í deildinni og við erum neðstir. Árangurinn á heimavelli í sumar hefur verið svona la-la en á útivelli hefur gengið verið hræðilegt. Aðeins eitt stig úr átta leikjum og markatalan 2:24. Það er því lífsnauðsynlegt að ná stigum á morgun, því síðasti leikurinn […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 7. september 2006 Engar athugasemdir »
Í tilefni síðustu færslu er rétt að benda á að fólk getur pantað hjá mér spádóma um hvað sem vera skal. Helst þurfa þetta þó að vera einhver já/nei málefni því þá er auðveldara að snúa spádómnum við, til að fá rétta niðurstöðu…
Lesa alla færsluna »