Færslur í janúar 2007

Grátlegt tap

Hrikalegt að tapa þessum leik. Þrátt fyrir að vörn og markverðir næðu engan veginn að standa dönsku skyttunum snúning, þá náðum við að hanga í Dönunum. Lokakafli venjulegs leiktíma var hrikalega spennandi, við söxuðum á forskotið jafnt og þétt, og ekki hefði ég viljað standa í sporum Snorra Steins á vítapunktinum í lokin. En hann […]

Lesa alla færsluna »

Eitur fyrir byrjendur

Mikið óskaplega er gaman að lesa velskrifaðar bækur; texta sem er svo safa- og litríkur, úthugsaður og ilmandi, að lesandinn þarf oft að staldra við til að lesa aftur, lesa hægt, láta áhrif textans seytla inn um skilningarvitin í rólegheitum og skjóta rótum í vitundinni.
Vissulega er líka oft gaman að renna yfir t.d. skemmtilega reyfara […]

Lesa alla færsluna »

Mývatnssveit 2007

Þá er komið að hinni árlegu ferð Vínklúbbs Akureyrar í Mývatnssveit. Þetta hafa verið frábærar ferðir og þessi eflaust engin undantekning. Það er afslappandi að skreppa aðeins úr bænum, breyta um umhverfi og skipta um gír. Góður félagsskapur, skemmtileg afþreying og vínsmökkun með Einari Thoroddsen. Endað á kvöldverði með tilheyrandi borðvínum. Kannski skroppið í jarðböðin […]

Lesa alla færsluna »

Ný færsla!

Sko til… þetta get ég!
Eins og dyggir lesendur hafa tekið eftir þá er langt síðan ég setti eitthvað hingað inn. Þó hafa oftsinnis komið augnablik þar sem ég vildi gjarnan skella einhverju inn en verið upptekinn akkúrat þá… og svo verið búinn að gleyma öllu þegar ráðrúmið loksins gafst. En ég þakka þeim lesendum sem […]

Lesa alla færsluna »