Flokkað undir Almennt þann 22. febrúar 2007 2 athugasemdir »
Snædís Ylva hringdi í mig í gærkvöld og tjáði mér að þau væru ekki enn komin til Reykjavíkur. Mér fannst það skrítið, því þau lögðu af stað upp úr kl. 13 í gærdag. En sú stutta tilkynnti mér hátíðlega að dekk hefði sprungið á bílnum og þau hafi farið út af veginum. Og bíllinn næstum […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Matur og vín þann 21. febrúar 2007 3 athugasemdir »
Vegna þess að ég hef á stundum viðhaft óvirðuleg orð um Bautann og kostinn þar þykir mér rétt að gera heyrinkunnugt að í dag fékk ég þar mjög ljúffengan mat. Þetta var ofnbakað grænmetislasagna. Mikið af góðu og fersku grænmeti í þessum rétti og hann smakkaðist alveg hreint ljómandi vel.
Á örugglega eftir að fá mér […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt þann 21. febrúar 2007 Engar athugasemdir »
Jæja, í dag fara kona og börn suður yfir heiðar og koma ekki fyrr en á sunnudaginn. Mér gefst varla mikill tími til að láta mér leiðast (liggja uppi í sófa/horfa á boltann/hanga í tölvunni…) því það er nóg framundan. Næ að skjótast í ræktina í dag eftir vinnu, skófla í mig skyri og fara […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Tölvur og tækni þann 21. febrúar 2007 Engar athugasemdir »
Eins og ég lofaði einhvern tímann nýlega þá ætlaði ég að taka útlitið á vefnum í gegn. Nokkrum dögum síðar kom hins vegar út stór uppfærsla á WordPress vefkerfinu og við þær aðstæður er rétt að doka með að hræra í útlitseiningunum. Byrja á því að uppfæra vefkerfið sjálft. Margar skemmtilegar nýjungar í þessari útgáfu.
Nú […]
Lesa alla færsluna »
Flokkað undir Almennt, Íþróttir þann 13. febrúar 2007 3 athugasemdir »
Jæja, hvernig væri nú að skrifa einu sinni eitthvað smávegis úr daglega lífinu? Eiginlega ætlaði ég fyrst að bölsótast yfir hnignun RÚV, því í morgun er ég var að ganga í vinnuna með morgunútvarp Rásar 2 í eyrunum ákvað umsjónarkonan að draga niður í Bob Dylan vegna þess að hana langaði svo að heyra nýja […]
Lesa alla færsluna »