Ég þarf að fara að hætta að snúsa svona oft á morgnana.
Annars hlýtur að vera til betra íslenskt orð yfir þessa athöfn en snús.
Ég þarf að fara að hætta að snúsa svona oft á morgnana.
Annars hlýtur að vera til betra íslenskt orð yfir þessa athöfn en snús.
Mig minnir að síminn minn spyrji: Blunda meira eða blunda lengur? Tja, hver þiggur ekki smá blund? Snús er eitthvað sem gamli útvarpsvekjarinn bauð upp á. Gott ef kallarnir í vinnunni hafi ekki líka boðið snús hérna í gamla daga.
Blundur er mjög fínt orð. Rímar líka við glundur, sbr. sullið sem ég lét inn fyrir varirnar ekki alls fyrir löngu. Á flöskunni stóð þó Chablis Petit, en áletrunin hefði allt eins getað verið Glundur. En það er önnur saga…
Gleðilegt sumar!