Töff að reykja?
4. september 2008 kl. 14:56 skrifaði Valur
Ég hugsa að Matthías og Styrmir hefðu snúið sér við í gröfinni, væru þeir dauðir, vegna vægast sagt sérkennilegrar umfjöllunar í Mogganum í gær. Rætt var við unga stúlku sem á forláta vatnspípu, fær sér á stundum smók úr henni og dregur hana fram í samkvæmum til að leyfa viðstöddum að prófa. Myndir fylgir með af stúlkunni og vinkonu hennar með græjuna. Mynd á baksíðu líka, með tilvitnun í greinina.
Öll umfjöllunin var sett fram með þeim hætti að það væri töff, flott og kúl að reykja vatnspípu… tja, rétt eins og fjallað væri um nýstárlega og flotta fatahönnun eða eitthvað slíkt.
Ég trúi þessu varla ennþá!
Er ekki allt í lagi í Hádegismóunum? Hugsanlega hefði maður búist við umfjöllun af þessu tagi í einhverju tímariti sem á að höfða til ungs fólks. En MOGGINN?? Íhaldssamasti fjölmiðill landsins til margra áratuga! Mogginn að breiða út þann boðskap að reykingar séu töff og kúl!!
Í vatnspípum þessum er reykt ávaxtablandað tóbak og tekið var fram að það væri “ekki eins sterkt” og annað tóbak….
Bíddu við…
Ef umfjöllunin hefði verið um áfengan gosdrykk með ávaxtabragði - svaka töff drykk, frískandi og flottan - hefði það verið í lagi? Vissulega er svona mjöður “ekki eins sterkur og vodka” en samt sem áður er þetta fokkings áfengi!!
Ég viðurkenni að ég er alveg hreint standandi bit á þessu. Áróðurinn sem rekinn hefur verið gegn reykingum síðustu áratugi hefur verið að síast í gegn smám saman - og svo kemur þetta.
Ekki er ég búinn að lesa Moggann í dag en ef þar verður ekki að finna einhvers konar umræðu um þetta mál þá er ég illa svikinn.
Alveg hissa á Mogganum að leita ekki álits hjá okkur Dodda, þekktum vatnspípureykingamönnum. En þetta er góður pistill og vissulega kom það manni í opna skjöldu að svona lagað skyldi birtast á síðum Morgunblaðsins. Ég er hræddur um að Árni Helgason og aðrir gamalkunnir sjálfstæðismenn og bindindisfrömuðir snúi sér við í gröfinni.
Bíddu nú við, síðan hvenær les ungviðið Morgunblaðið?