Svo (lengi) lærir sem lifir
24. febrúar 2010 kl. 09:17 skrifaði Valur
Ég sé að síðustu færslur fjalla óþarflega mikið um snjó. Mér er ekki um snjó gefið og kannski betra að beina skrifunum að öðru.
Til dæmis er skemmtilegt frá því að segja að ég er nýbúinn að læra að afhýða banana að hætti apa og finnst sú aðferð miklu sniðugri en sú gamla. Ég er samt ekki viss um hvort það er þroskamerki.