Snús

Ég þarf að fara að hætta að snúsa svona oft á morgnana.

Annars hlýtur að vera til betra íslenskt orð yfir þessa athöfn en snús.

Í tilefni dagsins…

… er kannski rétt að skella inn einni færslu.

Úff

Ég er þreyttur eftir auðveldan dag í ræktinni.

Huga þarf að útigangshrossum

Gætum að því.

Er hægt að reikna út lottótölur?

Sá merkilegt forrit á Netinu þar sem maður getur fundið út líklegar lottótölur, með því að slá inn vinningstölur síðustu mánaða. Forritið reiknar svo eftir kúnstarinnar reglum hvaða tölur líklegast er að komi upp næst.

Ég prófaði þetta í morgun með Víkingalottótölur og forritið skyrpti út úr sér tölum sem það vildi halda fram að myndu koma upp næst. Að vísu kaupi ég aldrei lottómiða en fyrst ég átti leið í Hagkaup ákvað ég að láta slag standa og prófa þessar blessuðu tölur.

Nú líður mér auðvitað bara eins og fábjána, fyrir að leggja trúnað á að eitthvert asnalegt forrit á Netinu geti reiknað út tölur sem við vitum að koma upp alveg tilviljunarkennt og engin leið að sjá fyrir!

Ekki að ástæðulausu að lottó skuli vera kallað “skattur á þá sem eru lélegir í stærðfræði”!

En ef einhver vill prófa líka, þá eru þetta tölurnar sem forritið sagði mér að kæmu upp:

1-3-10-27-28-46.

Forritið bauð ekki upp á útreikning á bónustölum, svo þetta verður að duga.

Sjáum svo til á morgun!

Hjúkk…

… heimurinn fór ekki á hvolf í gær. Svona almennt var 1. október hjá öllum sem ég þekki en ekki 31. september.

Þannig að þetta slapp fyrir horn - í bili. En það er samt best að halda vöku sinni.

Ap-jún-sept-nóv…

Tímatalsfræði eru flókin vísindi og ekki á allra færi að reikna út gang tímans svo treystandi sé á. Ýmis kerfi hafa verið fundin upp síðustu árþúsundin til að henda reiður á hvernig tímanum líður og byggjast þau mörg hver á snúningi jarðar um möndul sinn, auk ferðalags jarðarinna kringum sólina. En vegna þess að jörðin “hallast” ofurlítið þá kemur fram örlítil skekkja í öllum þessum hringsnúningi, sem gerir það að verkum að sólarhringurinn er ekki nákvæmlega 24 klukkustundir og árið ekki nákvæmlega 365 dagar (í kerfinu sem við flest notum). Þessi skekkja er því sem næst jöfnuð út á fjögurra ára fresti þegar aukadegi er skotið inn í febrúarmánuð.

Þetta system hefur virkað ágætlega alllengi - flestir eru vel sáttir við það og kunna formúluna upp á sína tíu fingur. Börnin læra ung nöfn daga og mánaða og vísan góða sem fyrirsögnin hér að ofan vísar í kennir þeim á hrífandi einfaldan hátt hvernig dagafjöldi ársins skiptist niður á mánuðina.

Þess vegna skýtur það skökku við að bæjarfélag í litlu landi norður í Ballarhafi skuli rísa upp gegn þessum viðteknu tímatalsvenjum og hrófla við þessu gamalgróna kerfi. Ég er hálfsmeykur við þetta, því hver veit hvað gerist þegar farið er að fikta með tímann? Þetta getur haft ófyrirsjáanleg áhrif á gangverk alls alheims - við gætum endað á því að sogast inn í eitthvert svarthol og veröldin endað í einum litlum samanþjöppuðum klumpi. Eða þá að óstöðugleiki tímans verði til þess að við flökkum fram og aftur í tíma. Skil fortíðar, nútíðar og framtíðar mást út. Það gæti orðið býsna óþægilegt að vita ekki að kvöldi dags hvort maður vaknaði í félagsskap forsögulegra risaeðla eða framsögulegra geimvera.

Tökum ekki áhættuna á að hrófla við þessu. Ég vil því hvetja alla Akureyringa að taka fram dagatalið sem bæjaryfirvöld sendu inn á hvert heimili og KLIPPA ÚT daginn 31. september. Tökum hann úr umferð - áður en hann rennur upp. Annars gæti það verið um seinan.

Einhverjir eru þó greinilega í leynilegu samstarfi við Akureyrarbæ um að skapa þessa ringulreið í tímatalinu. Í dagatali sem einstaklingur í bænum hannaði og gaf út, og aðeins var dreift til útvalinna, er þessa lymskulegu tímatalsvillu að finna. Ég náði mynd svo lítið bar á. Smelltu á hana til að sjá hana stærri.

Dagatal

Stöndum saman! Ekki hrófla við tímanum! Afneitum 31. september!

Ókjör af líkjör

Ég og sambýliskonan tókum hús á konu einni ónafngreindri á Brekkunni nú síðdegis og fengum góðar veitingar. Ekki síst var hressandi að bergja á notalegum pólskum líkjör sem húsfreyja lumaði á. Þaðan er nú þessi hnyttna fyrirsögn komin!

Ekki má gleyma því að ég skulda henni viskíflösku. Þarf að gera þá skuld upp áður en næsta “sending” kemur…

“Sæll Doddi”

Í morgun þegar ég skálmaði í vinnuna mætti ég manni á reiðhjóli sem kastaði á mig kveðju. “Sæll Doddi,” sagði hann.

Ekki fannst mér hann líkur neinum sem ég þekki - en er jafnframt viss um að því er einmitt öfugt farið með hann.

Fjallganga í vorblíðunni

Engu er um það logið að veðrið hafi leikið við okkur undanfarna daga. Þetta hafa verið eins og bestu sumardagar og vel fallnir til útiveru.

Við fjölskyldan tókum okkur til um helgina og fórum í litla fjallgöngu. Gengum upp að hinum fornfræga skátaskála Fálkafelli, Við Pásusteinsem er uppi á Súlumýrum, skammt ofan Akureyrar. Þetta er hvorki mikil ganga né erfið en það er samt skemmtilegra að stefna að einhverjum ákveðnum punkti, í staðinn fyrir að fara bara “eitthvað”. Næst stefnum við kannski á einhvern tind…

Meðfylgjandi mynd er af þeim mæðgum við Pásustein, þar sem til siðs er að staldra við og kasta mæðinni. Rétt með herkjum að tókst að festa þá stuttu á mynd en hún er ansi myndavélafælin. Veit ekki hvaðan hún hefur það!

 

Við FálkafellEn upp að skálanum komumst við og þar var unað við ærsl og leiki drjúga stund.

Smella má á myndirnar til að sjá þær stærri. Mesta furða hvað verður úr þeim miðað við að þær eru teknar á farsíma.


« Nýrri færslur - Eldri færslur »